Ágætu
foreldar/forsjármenn 3. bekkinga
Spurnir hafa borist af
ferðaáformum 3. bekkinga að loknum prófum, jafnvel strax á þriðjud-
miðvikudag í næstu viku. Þess vegna er áhugi af hálfu
foreldrafélagsins í samvinnu við foreldra 3. bekkinga og rektor MR
að vera á vaktinni og jafnvel rölta þar sem börnin safnast saman.
Það er ekki síst með reynslu síðasta árs í huga en þáverandi 3.
bekkingar fóru í ferð sem var stöðvuð enda einhverjir orðnir illa
drukknir og kaldir.
Þá er rétt að hvetja
foreldra/forráðamenn á að lána ekki sumarbústaði fyrir
eftirlitslaus partí. Jafnframt vil ég biðja forelda/forsjármenn að
láta mig eða einhvern í stjórninni vita af áformum 3. bekkinga, en
heyrst hefur að þeir séu að reyna að plana tjaldferð upp í
Svínadal. Netfang mitt er halldor.reynisson@kirkjan.is
og gsm 856-1571.
Þegar við fáum staðfestingu á
ferðum krakkanna munum við senda póst um það hvar og hvenær við
hittumst og svo leggjum við í hann.
Halldór Reynisson
Formaður foreldrafélags MR
---------------------------
Eruði ekki að fokking grínast? Það er talað um
okkur eins og við séum hálfvitar. Maður fær semi reiðan kjánahroll
af að lesa svona leynilögreglupóst, "reyna að plana tjaldferð upp í
Svínadal" ... what the fuck síðan hvenær vorum við á leiðinni
þangað? Ég hvet alla til að segja foreldrum sínum að við séum að
fara til Stykkishólms hohohoho (úú Halldór, hvað ætlaru að gera
núna?)
Takk fyrir að reyna að eyðileggja eitthvað sem er
búið að halda okkur gangandi undanfarið elsku hjartans Halldór.
Hvernig líður þessu fólki, að vera að reyna að skemma allt fyrir
öllum. Bannaðu þínu barni bara að fara!
(smá breytt heehhee)